Her er thad andafjandinn sem ridur raekjum

Wednesday, May 26, 2004

HUGARHEIMUR ER FLUTTUR Á NÝJAN STAÐ!!

Já hvort þetta verður tímabundið eða endanlegt liggur ekki alveg fyrir. Þó mun ég halda mig á nýja staðnum um nokkurt skeið.

Nýja bloggið er blog.central.is/hugarheimur

Nýja heimilið er hér!!
|

Tuesday, May 25, 2004

Já sjaldan er ein báran stök, og á það við mig þessa dagana. Ekki nóg með það að vera með lungun í hönki þá er ég líka kominn með eitlabólgu... kannski ekkert banvænt, en leiðinlegur kvilli þar á ferð. Ja ég segi nú bara, enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, og að það sjaldan jafn vel við og um heilsuna. Eftir þetta rugl er ég nú bara þakklátur svo lengi sem ég get andað, ég segi nú ekki annað.

Ég var að horfa á The Return of The King áðan... maaargar pælingar fæddust í kollinum á mér. Til dæmis ef að trílógíunni hefði verið leikstýrt af konu. Ætli hún heyfði gert meira úr kvenkarakterunum sem að eru reyndar fáir. Hvort hún hefði lengt ræðurnar þeirra? Skemmtileg pæling.

Önnur... hvað eg að Trílógían hefði verið leikstýrð af meistara Quentin Tarantiono? Ja ég veit ekki, en ég er handviss um að hann hefði skemmt sér vel við að gera Gimli karakterinn eftirminnilegan.

Þriðja pæling... ég hugsaði mikið út í tónlist myndarinnar.... hvað ef tónlistinn hefði verið "týpísk hollywood tónlist" með rokki og poppi, söng og þess háttar. Ef að Farelli brothers hefði leikstýrt og eftir credit-listann látið föruneytið sameinast í söng á borð við We are the champions eða Build me up buttercup.

Svo ef að sagan hefði endað þannig... Frodo vaknar... og þetta var allt draumur... þúsundir sjálfsmorða hefðu verið framin á sekúndunni.

En Pjakkur kveður með kramin lungu og hvínandi eitlabólgu ;)
|

Thursday, May 20, 2004

Já á síðustu dögum hef ég gengið í gegnum margt og orðið reyndari maður fyrir vikið.
Förum í gegnum þetta, dag fyrir dag.

Fimmtudagsnótt: Þá get ég varla sofnað fyrir brjóstverkjum og hafði ekki hugmynd um hvað væri að gerast. Ég harkaði af mér og náði að sofna fyrir vikið.

Föstudagur: Hvarta ég undan verkjum og heyri óhljóð úr brjóstkassanum. Um kvöldið fer ég til læknis og hann hyggst senda mig í lungnamyndatöku daginn eftir. Ég fer heim.

Laugardagur: Ég fer í myndatöku á Selfossi um fimm leitið. Þá kemur í ljóst samfall á vinstra lunganu. Ég er keyrður til Reykjavíkur og þar eru teknar fleiri myndir og ég lagður inn á spítala. Það sem að var að mér var það að út af engu hafði fallið saman hluti af öðru lunganu.

Sunnudagur: Ég fer í myndatökur og þá er athugað hvort ég slepp við aðgerð eður ey, málið er látið bíða til morguns.

Mánudagur: Ég fer myndatöku um morguninn og það er ákveðið að senda mig í aðgerð. Ég er keyrður á mínu fallega sjúkrarúmi á skurðdeild þar sem ég er látinn fá kæruleysislyf í æðina, og það er sko snilld, maður verður blindfullur á 5 sekúndum. Þá er stungið á mig gat á milli rifja og slöngu troðið inn í mig og slangan tengd við e-ð sog. Þetta var sko engin smá slanga, tæpir 20 cm. Á spítalanum eignaðist ég nýjan vin.... hann heitir Morfín hehe.

Þriðjudagur: Ekker gert og ég ligg í rúminu og kemst ekkert þaðan. Kvalir er þó nokkrar.

Miðvikudagur: Slökt á soginu, ég er settur í myndatöku og ákveðið að taka draslið úr mér. Ég er ekkert deyfður. Halla mér á hina hliðina, gríp í rúmið, held í mér andanum og passa mig að berja ekki lækninn, sársaukinn var svo mikill að það leið næstum yfir mig, ég sá bara svart á meðan. Svo er saumað fyrir, sentur í myndatöku og útskrifaður.

Núna er ég heima í sveitinni og vona að þetta taki sig ekki upp. Á þessum tíma lærði ég að hjúkkur eru ekki eins flottar og er logið að manni í bíómyndum og þakka ég guði því að þær ganga ekki í stuttum pilsum því það hefðu orðið mestu hvalirnar að sjá allar þessar ömmur gangandi um í skólabúningum.
|

Friday, May 14, 2004

munið að skrifa í gestabókina mína nýju hér til hliðar

En já, þá er það búið, vonandi. Prófin, lokaballið, skólaárið runnið út í sandinn.

Lokaballið var snilldin ein þar sem ég var á góðu flippi og söng af öllum lífs og sálarkröftum fyrir utan Felix. Þá má nefna að ég dansaði á götunni og söng "L is for the way you look at me..... o.s.frv." fyrir tvær stúlkur, skellti mér á hnén með miklum tilþrifum. Fékk góðar undirtektir.

Ég og Pálmi settumst inn á Nelly's og fengum okkur öllara með fimmtugri norskri fyllibyttu og hann hafði margt að segja eins og "Jeg elsker jytter, jeg elsker at knylde, jeg elskert livet..... men jeg hader sjálfstæðisflokkinn" hehe

Svo var haldið á Nonnabita, yndælt eins og ávallt eftir djammið. Svo var það ekkert meira, ég og Pálmi deildum cabba heim.

Ég er kominn í sveitina fyrir sumarið, sorglegt nok. En ég verð duglegur við að heimsækja okkar minnstu stórborg í heimi.

tuttugogfjóri tuttugogfjóri over and out sóóóólstrrraaaandagæjji
|

Sunday, May 02, 2004

Ég heilsa ykkur, frekar slappur hér fyrir austan fjall.
Ég er ekki sáttur við hvernig staðið er að lokaballinu okkar, það er stutt, á pínulitlum stað og með alls óþekktri hljómsveit. Spurning hvort að maður finni sér ekki aðra afþreyingu.

Pæling. Hvernig ná "hnakkar" sér í kærustur.

Mínar hugmyndir eru þær.


Þeir fara á irkið, inn á íslenska spjallarás þar sem að allt er "morandi" í unglingaveikinni. Setja skilaboð eins og "Hæ ég er 19 ára, á bíl, eru eitthverjar graðar stelpur til í spjall?" eða e-ð álíka. En hann fær líklega ekkert svar svo hann gerir desperat leit að 14 ára stelpum, því að það eru svona þær einu sem líta við þeim og eru með svipaðan píkupopps tónlistarsmekk. Svo senda þeir þeim photosjoppaða mynd af sér þar sem þeir kreppa alla vöðva eins og þeir geta. Svo reyna þeir að fá þær "á rúntinn" eins og það er gjarnan kallað. Sorglegt nokk.

Svo eru sumir sem að komast ekki á irkið, þá hringja þeir í vini sína með aflitaða hárið og þeir fara inn í bílskúr, kveikja neonljósið undir Hondu Civic bílnum sínum, finna diskana sína eins og Usher: Best of eða rifja upp stemmingu frá 2002 og setja 24 karat gold með Scooter í bílinn og "blasta" draslið í botn eins og þeir vilja orða það. Svo setja þeir upp speglagleraugun sín þó svo að það sé rigning og taka svo "rúntinn" niður Laugarveginn og vonast til þess að smástelpurnar líti við þeim ef að þeir spila "tónlistina" nægilega hátt.

Svona held ég að þetta gangi fyrir sig hjá þessum litlu rúsínum hehe

tuttugogfjórir tuttugogfjóri over and out... sóóóóólstraaaandagæji
|

Tuesday, April 27, 2004

Jamm og jamm, blessuð prófin byrjuð.
Ég kíkti austur og er þar núna fyrst að ég þarf ekkert að mæta í skólann fyrr en á föstudaginn.

Ég tók smá Tarantino syrpu síðasta föstudag og sá Kill Bill Volume 1 og 2 og var það smekksneysa af snilld og gamani. Báðar myndirnar eru snilldin ein og því verður ekki neitað. Við tókum svo göngutúr frá Smáralindinni upp í Ártúnsholt og var það klukkan 4 um nótt.... það var mjöög gaman. Sérstaklega þegar magnús sökk í drullu og ég drukknaði úr hlátri.

Einnig elti ég kanínur í Elliðaárdalnum með hníf í hendi.. hehe það var gaman. Svo hlustuðum við á ljóskur eiga skemmtilegt samtal.

L1:Hey vá bók um jóga!
L2: Ha já!
L1:Ég ætla að fara í svona...... jóga!
L2:Eþþa?
L1: Já jóga... nei bara djóka hahaha
(conversation goes on)
L1: Við verðum að hætta þessu, fólk fer að halda að við séum e-ð vitlausar!!
Ég: Reaaaallyy??

Blonds? It's not your thing to talk.
|

Monday, April 19, 2004

Djös mar, mér er ekki skemmt.... reyndar leiðist mér bara frekar mikið.
Maður er mættur aftur í skólann, og veðrið er sérstaklega íslenskt, sól og vindur. Ég þarf að koma mér heim bráðlega og skirfa ritgerðIR fyrir morgundaginn, því að það er víst enginn gríðarlegur tími eftir af skólanum, eða svo er mér sagt... þrír kennsludagar eða svo.

Ég las það á mbl.is að forseti okkar íslendinga er kominn í stjórn þeirra sem standa fyrir ólympíuleika fatlaðra og er hann fyrsti þjóðhöfðinginn sem að situr þar. Gaman að því verð ég að segja ;) hehe

Kvöldið verður lítilfjörlegt, ritgerðasmíð og survivor þáttur. Hljómar spennandi, nær öllum er samt velkomið að kíkja á mig, bara svona upp á kóýligheitin hehe

24,24 over and out ééééég eeerr skooo gæææi
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?